Það er gaman að velta fyrir sér spurningunni:
Hvað ef hlutirnir hefðu þróast á annan veg en þeir gerðu.
Ja, þá segðum við til að mynda “sjókólaði” á svona “elegant”
og fágaðan máta í staðinn fyrir hið jarðbundna og hversdagslega orð “súkkulaði”
Eftirfarandi auglýsingin birtist í Eimreiðinni árið 1896:
Hið bezta sjókólaði
er frá verksmiðjunni “Síríus” í fríhöfninni í Khöfn. Það er hið drýgsta og næringarmesta og inniheldur meira af kakaó en nokkur önnur sjókólaðitegund.
Veröldin er þó hvorki alsvört né alhvít og orðin falla ekki fullþroskuð af himnum ofan. Benda má á að safn Orðabókarinnar geymir ýmsar birtingarmyndir af þessu tökuorði frá því um aldarmótin 1900: “súkkulade”, “sukkulade”, “sukkulaði”.